Ull vex ekki á geitum, þess vegna finna menn ekki það sem þeir leita að þegar þeir leita ullar í geitarhúsi. Íslenskar geitur hafa bæði strý og fiðu og er töluvert meira af fiðu á þeim en hjá erlendum geitum. Fínleiki þess er mikill og flokkast undir kasmírull. Gæran er kölluð staka.
Fornleifafræðilegar greiningar á dýrabeinum sýna að á 9. og 10. öld voru geitur á flestum bæjum en þeim fór fækkandi eftir það. Við upphaf 13. aldar voru geitur orðnar sjaldgæfar en á móti fjölgaði kindum. Í dag finnast geitur í öllum landshlutum nema á Vestfjörðum og er geitfjáreign afar dreifð. Geitastofninn telst vera í útrýmingarhættu en í árslok 2016 taldi stofninn 1188 vetrarfóðraðar geitur í 104 hjörðum.
Öðlist íslenski geitfjárstofninn hlutverk sem framleiðslustofn gæti það orðið sá stökkpallur sem hann þarf til að standa af sér þá ógn sem hann stendur andspænis í dag.
Geitur virðast í upphafi fyrst og fremst haldnar til mjólkur- og kjötframleiðslu. Fiðan, skinnið, hornin og fitan (tólg) voru líka nýtt að einhverju leyti. Skinn geitanna var til dæmis notað sem rúmfatnaður, sem ábreiða á sæti hnakka, bókband, skófatnaður og húfur.
Í dag er framleitt kjöt, mjólkurvörur, snyrtivörur og ull í afar smáum stíl. Þessar vörur seljast allar upp sem gefur vísbendingu um að verulega megi bæta vöruframboðið. Geitkjöt er magurt en próteininnihald svipar til nautakjöts. Geitasperglar eru mikið hnossgæti. Bragðgæði ákvarðast meðal annars af fóðurvali geitarinnar og aldur við slátrun. Tólgin hefur verið notuð í matargerð, til sápugerðar og sem krem. Hún hefur þótt góð fyrir þurra húð.
Minnst er á geitfé í fornbókmenntum til dæmis í Snorra-Eddu, Ljósvetningasögu og Landnámu. Í Snorra-Eddu er sagt frá því að þrumuguðinn Þór hafi átt tvo hafra þá Tanngrisnir og Tanngnjóstur sem drógu vagninn hans. Þar segir einnig frá geitinni Heiðrúnu en úr spenum hennar rann mjöður mikill sem bardagamenn Valhallar drukku af góðri lyst. Örnefni dregin af geitum eru algeng um landið eins og til dæmis Geitafell, Geitasandur, Hafursá, Kiðafell og Kiðjaberg.
Matur úr geitakjöti, vöðvar og hryggur, lundir
Geitamjólkin gefur af sér osta
Vinnsluaðferðir kjöts: grafa, loftþurrka
Hliðarafurðir: Sápur, krem, smyrsli, stökur og afurðir „ullarinnar“