Askurinn 2019 – Matarhandverkskeppni
Íslandsmeistarakeppni í matarhandverki Askurinn, verður haldin 19-21 nóvember.
Keppni í matarhandverki er fyrir framleiðendur matarhandverks. Keppnin felur í sér að framleiðendur fá faglegt mat á gæði vörunnar og eru verðlaun veitt fyrir þær vörur er þykja skara fram úr. Gullverðlaunahafi er jafnframt Íslandsmeistari í viðkomandi flokki.
Nánari upplýsingar um keppnina má finna á skáningarsíðu Asksins 2019 Matarhandverkskeppni. https://matisevents.com/matarhandverk/
Keppt er í 6 keppnisflokkum:
- Mjólkurvörur
- Kjöt
- Fiskur & sjávarfang
- Bakstur
- Ber, ávextir og grænmeti
- Nýsköpun í matarhandverki
Skráningu lýkur 4. nóvember. Hver þátttakandi má skrá eins margar vörur og hann vill í hvaða flokk sem er. Keppnisvörur skal afhenda ekki síðar en á hádegi 19 nóvember á Matís, Vínlandsleið 12, 113 Reykjavík. Úrslit keppninnar verða tilkynnt á Matarhátíð á Hvanneyri 23 nóvember kl 14:00.
Að matarahátíðinni og keppninni standa Sóknaráætlun Vesturlands, Markaðsstofa Vesturlands, Matarauður Íslands, Matís og Landbúnaðarháskóli Íslands