Scroll To

Íslenskur keppandi keppir á Ólympíuleikum ungkokka

Í næstu viku, 28. janúar til 2. febrúar fara fram Ólympíuleikar ungkokka á Indlandi og mun Ísland eiga keppanda þar. Alls taka 32 þjóðir þátt í keppninni hvaðanæva frá í heiminum. Síðast þegar Ísland keppti hreppti Ísland 6. sætið. Til mikils er að vinna, því verðlaunafé fyrir sigur í þessari sterku keppni er 1,2 milljónir íslenskra króna. Keppnin fer fram í 6 borgum víðsvegar um Indland og mun Ísland keppa í Deli, Goa og Kolkata.

Keppandinn Íslands heitir Anton Elí Ingason og er frá Akranesi. Hann hefur verið aðstoðarmaður í Boucus O´dor þegar Bjarni Siguróli keppti fyrir Íslands hönd. Einnig hefur Anton starfað á sumum af bestu veitingahúsum Íslands eins og Nostra.

Anton hefur æft stíft fyrir keppnina í Menntaskóla Kópavogs undanfarnar vikur. Í æfingunum skiptir tímasetning öllu segir Anton, því keppendum er úthlutað tíma í verkefnin, aðeins 1 og hálfur tími á hverjum keppnisdegi og eru verkefnin mjög margbreytileg. Allt frá úrbeiningu á kjúklingi og elda aðalrétt úr honum yfir í bakstur á perueftirrétti eða grænmetisrétti úr framandi hráefni.

Aðspurður segir Anton að hann hlakki mest til að vinna með allt það framandi hráefni sem verður skaffað, margt nýtt sem hann hefur ekki unnið með áður.

Þjálfarinn hans í keppninni er Hinrik Carl Ellertsson, sem var rekstarstjóri á Dill restaurant auk þess að starfa í dag sem kennari við Menntaskólann í Kópavogi. ,,Ég hef mikla trú á drengnum, hann hefur staðið sig vel í undirbúningi og er mikil tilhlökkun í hópnum”.

Meira er hægt að lesa um keppnina hér

Website: http://ycolympiad.com

Facebook:  https://www.facebook.com/ycolympiad

Twitter: @ycolympiad

Instagram : yc_olympiad og á instagram Matarauðs

You tube : https://www.youtube.com/watch?v=_WKeBkitqLs&feature=youtu.be

Ekkert af þessu væri hægt án góðrar aðstoðar frá styrktaraðilum og þeir eru:

Matarauður Íslands, Menntaskólinn í Kópavogi, Matvís, Iðan fræðslusetur, Iðnaðarmannafélag Reykjavíkur, Fastus, Bananar