Veitingahús sem bjóða upp á rétt úr hugmyndasamkeppninni „Þjóðlegir réttir á okkar veg“
Nú hafa matreiðslumeistarar Hótels- og matvælaskólans farið hringferð um landið og heimsótt þá veitingastaði sem bjóða í sumar upp á rétt úr hugmyndasamkeppninni „Þjóðlegir réttir á okkar veg“
Veitingastaðirnir fengu frjálsar hendur við að velja sér rétt úr þeim 15 réttum sem valin voru til undanúrslita. Við hvetjum alla til að prófa þessa rétti sem veitingastaðirnir bjóða upp á. Svona lítur listinn út:
Tryggvaskáli á Selfossi verður með Troðfyllta ástarpunga fyllta með vanillukremi og skyri
Midgard Base Camp Hvolsvelli verður með Brauðsúpubrulée
Svarta Fjaran við Reynisfjöru verður með Rófugraut
Þórbergssetur verður með sína útgáfu af Bræðrabyltu
Randulffssjóhús á Eskifirði verður með Nesti smaladrengsins og Plokkfisk
Havarí við Berufjörð verður með Byggrisotto
Kaupfélagið Raufarhöfn verður með Nesti smaladrengsins og Fjallagrasabrulée
Vogafjós við Mývatn verður með Rúgbrauðsábæti
Kaffi Kú nálægt Akureyri verður með Fjallagrasabrulée
Heydalur í Mjóafirði verður með Kjöt í karrý
Brimslóð verður með Rúgbrauðsbrulée
Narfeyrarstofa verður með Á bakka lá íslenskur saltfiskur
Krauma við Deildartunguhver verður með Á bakka lá íslenskur saltfiskur