Innkaupastefna matvæla fyrir ríkisaðila
Innkaupastefna matvæla fyrir ríkisaðila
Á fundi ríkisstjórnarinnar föstudaginn 17 maí 2019 var samþykkt tillaga Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um innkaupastefnu matvæla fyrir ríkisaðila. Íslenska ríkið kaupir matvæli fyrir um þrjá milljarða króna á ári og sem stórkaupandi getur það haft víðtæk áhrif á eftirspurn eftir matvælum, stuðlað að umhverfisvænum innkaupum, dregið úr kolefnisspori og eflt nýsköpun. Vonast er til að stefnan verði fordæmisgefandi fyrir sveitarfélög og aðra. Kjarni stefnunnar er að innkaup ríkisaðila á matvælum byggi á markmiðum um sjálfbærni, góða lýðheilsu og umhverfisvitund.
Innkaupastefnan var unnin á vettvangi Matarauðs Íslands í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið, umhverfis- og auðlindaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga. Við vinnslu stefnunnar var haft víðtækt samráð við hagaðila og drög að stefnunni voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í mars 2019.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:
„Ég fagna því að ríkisstjórnin hafi samþykkt innkaupastefnu fyrir opinber innkaup matvæla sem byggir á því að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum við framleiðslu, flutninga og umsýslu matvæla. Í stefnunni er lögð áhersla á að máltíðir í mötuneytum séu í samræmi við ráðleggingar Embættis landlæknis um mataræði og að neytendur séu upplýstir um uppruna og næringargildi matarins. Það er mín trú að stefnan muni efla íslenska matvælaframleiðslu og veita henni enn frekari tækifæri til nýsköpunar og þróunar.“
Hér má sjá innkaupastefnuna https://mataraudur.is/vizkubrunnur/skyrslur-greinar/