Scroll To

Askurinn 2019 – Matarhandverkskeppni

Íslandsmeistarakeppni í matarhandverki Askurinn, verður haldin 19-21 nóvember.

Keppni í matarhandverki er fyrir framleiðendur matarhandverks. Keppnin felur í sér að framleiðendur fá faglegt mat á gæði vörunnar og eru verðlaun veitt fyrir þær vörur er þykja skara fram úr. Gullverðlaunahafi er jafnframt Íslandsmeistari í viðkomandi flokki.

Nánari upplýsingar um keppnina má finna á skáningarsíðu Asksins 2019 Matarhandverkskeppni. https://matisevents.com/matarhandverk/ 

Keppt er í 6 keppnisflokkum:

  • Mjólkurvörur
  • Kjöt
  • Fiskur & sjávarfang
  • Bakstur
  • Ber, ávextir og grænmeti
  • Nýsköpun í matarhandverki

Skráningu lýkur 4. nóvember. Hver þátttakandi má skrá eins margar vörur og hann vill í hvaða flokk sem er. Keppnisvörur skal afhenda ekki síðar en á hádegi 19 nóvember á Matís, Vínlandsleið 12, 113 Reykjavík. Úrslit keppninnar verða tilkynnt á Matarhátíð á Hvanneyri 23 nóvember kl 14:00.

Að matarahátíðinni og keppninni standa  Sóknaráætlun Vesturlands, Markaðsstofa Vesturlands, Matarauður Íslands, Matís og Landbúnaðarháskóli Íslands