Scroll To

Hvaða þjóðlega rétt vilt þú fá þegar þú ferðast um landið

Þjóðlegir réttir á okkar veg – ertu með?

Matarauður Íslands og Hótel- og matvælaskólinn efna til hugmynda- og uppskriftasamkeppni um þjóðlega rétti við þjóðvegina okkar. Kannski verður þín hugmynd á matseðli veitingarstaða hringinn í kringum landið?

Það getur verið erfiðleikum bundið að skilgreina hvað sé þjóðlegur matur. Vissulega getum við leitað til hefðanna og sagt sem svo: Þetta er þjóðlegt, þetta er íslenskt. Það er hins vegar hluti þess að lifa í samfélagi að taka hlutina til endurskoðunar öðru hverju og þróa í takt við tíðarandann.

Tökum höndum saman og tengjum umræður næstu daga við  íslenskt hráefni og matarmenningu. Deilum matarminningum með hvert öðru og sjáum hvaða hugmyndir þjóðin kemur með.

Það má senda inn hefðbundnar og óhefðbundar hugmyndir, í gömlum eða nýjum búningi. Okkar skilningur er þó að þjóðlegir réttir spretta alltaf upp úr íslensku hráefni. Sérstaklega verður tekið tillit til þess ef saga á bak við réttinn fylgir með.

Hótel- og matvælaskólinn eldar og reiðir fram 15 valda rétti úr innsendum hugmyndum fyrir dómnefnd. Fimm réttir standa síðan upp úr sem vinningsréttir. Veitingahús í kringum landið í samstarfi við okkur, velja einn af þeim 15 réttum sem komast í undanúrslit, á matseðilinn sinn í sumar.

Keppnin stendur til 1.mai næstkomandi. Hægt er að lesa nánar um samkeppnina og skrá  hugmynd eða uppskrift á www.mataraudur.is. Úrval uppskrifta og hugmynda verða birtar á vef Matarauðs Íslands 11. maí og þar verður hægt að líka við hugmyndirnar og deila á samfélagsmiðlum. #þjóðlegirréttir

Samhliða þessu átaki bjóðum við fólki að skrá matarminningar sínar og hægt er að gera það á mataraudur.is