Scroll To

ÍSLENSKA KOKKALANDSLIÐIÐ VANN TIL TVEGGJA GULLVERÐLAUNA

Íslenska kokkalandsliðið vann til tvennra gullverðlauna á Ólympíuleikum matreiðslumeistara í Stuttgart í Þýskalandi 16. og 17. febrúar síðast liðinn. Unnu þeir bæði  „Chefs Table“ og „Hot Kitchen“ sem var seinni grein liðsins í ár. Liðið hefur á síðustu árum raðað inn gullverðlaununum á alþjóðlegum mótum sem hefur tryggt þeim stöðu eins fremsta landsliðs í heimi.

„Ég er ótrúlega ánægður og þakklátur. Landsliðið hefur lagt ótrúlega mikið á sig bæði í undirbúningi og keppninni hérna úti og þau uppskera glæsilega“. Segir Björn Bragi Bragason, Forseti Klúbbs matreiðslumanna sem er úti í Stuttgart með liðinu. „Þetta hefði þó ekki verið hægt án allra þeirra sem leggja okkur lið í að komast hingað út. Ég verð sérstaklega að þakka Matarauði, Íslandsstofu, Ísey skyr og MS sem hafa verið með okkur í þessu verkefni og gert okkur kleift að ná þessum árangri“

Kokkalandsliðið hefur æft stíft síðustu 8 mánuði fyrir keppnina. Hátt í fjögur tonn af búnaði var sendur til Þýskalands en liðið þarf að setja upp fullbúið eldhús á keppnisstaðnum. Þá er ótalið það hráefnið sem flytja þarf á staðinn en Kokkalandsliðið leggur áherslu á að nota sem mest af hágæða íslensku hráefni í matargerðina.

Ólympíuleikarnir, IKA Culinary Olympics, eru haldnir á fjögurra ára fresti og í ár fagnar keppnin 25 ára afmæli. Þar mætast um 2.000 af færustu kokkum heims sem keppa sín á milli um gull, silfur og brons verðlaun. Keppnin hefst 14. október og stendur til 19. október. Lið frá um 60 þjóðum keppa á leikunum. Kokkalandsliðið keppir í tveimur greinum, annars vegar er keppt í “Chef´s table” og hins vegar er keppt í heitum mat eða Hot Kitchen. Í keppninni um heitu réttina er útbúinn þriggja rétta matseðill með forrétt, aðalrétt og eftirrétt sem eldað er frá grunni á keppnisstað fyrir 110 gesti. Í Chef´s table er framreiddur 7 rétta hátíðarkvöldverður fyrir 10 manna borð, auk tveggja dómara. Kvöldverðurinn samanstendur m.a. af fiskréttafati, pinnamat, vegan rétt, lambakjöti og desert. Dómarar alls staðar að úr heiminum með tilheyrandi réttindi dæma í keppnunum þar sem meðal annars er tekið mið af bragði, útliti, samsetningu, hráefnisvali og fagmennsku við undirbúning og matargerð.

Íslenska kokkalandsliðið hefur síðustu ár skipað sér meðal þeirra færustu í matreiðslu og er nú meðal 6 bestu kokkalandsliða heims.
Í Kokkalandsliðinu eru: Sigurjón Bragi Bragason, þjálfari Kokkalandsliðsins, Björn Bragi Bragason, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, varaforseti Klúbbs matreiðslumeistara, Kristinn Gísli Jónsson, Snorri Victor Gylfason, Sindri Guðbrandur Sigurðsson, Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, Ísak Darri Þorsteinsson, Jakob Zarioh Sifjarson Baldvinsson, Ísak Aron Ernuson og Chidapha Kruasaeng. Auk þess fara með út aðstoðarmenn: Ari Þór Gunnarsson, Aþena Þöll Gunnarsdóttir, Dagur Hrafn Rúnarsson, Guðmundur Halldór Bender, Kristján Örn Hansson, Valur Bergmunsson, Jón Þór Friðgeirsson, Ragnar Marinó Kjartansson og Ívar Kjartansson.