Scroll To

Matarupplifanir á einum besta áfangastað Evrópu

Arctic Coast Way – Norðurstrandarleið hefur verið valin á topp 10 lista yfir þá áfangastaði í Evrópu sem best er að heimsækja, að mati Lonely Planet sem er einn vinsælasti útgefandi ferðahandbóka í heiminum.Þetta er mikil viðurkenning fyrir allt það starf sem nú þegar hefur verið unnið við að koma Arctic Coast Way af stað, en leiðin verður formlega opnuð þann 8. júní næstkomandi.

Umfjöllun Lonely Planet segir meðal annars að á leiðinni sé að finna allt það besta sem Íslandi hafi að bjóða en um fáfarnari slóðir. „Frá söguslóðum til miðstöðva hvalaskoðunar, þá býður hvert lítið þorp og bær upp á innsýn inn í lífið á toppi veraldarinnar,“ segir meðal annars í umfjölluninni.
„Með þróun Norðurstrandarleiðar verður til aðdráttarafl fyrir ferðamenn sem vilja halda sig utan alfaraleiðar og gera það með því að fara meðfram strandlengju Norðurlands. Samtals er leiðin um 900 kílómetra löng, með 21 bæ eða þorpi og fjórum eyjum sem auðveldlega er að hægt að komast út í með bát eða ferju. Ferðafólk sem fer þessa leið fær tækifæri til að ná betri tengslum við náttúruna, litskrúðugt menningarlíf og einnig hið daglegt amstur þeirra sem búa í nálægt við norðurheimskautsbauginn,“ útskýrir Rögnvaldur Már Helgason hjá Markaðsstofu Norðurlands og segir jafnframt:
„Sérstök áhersla hefur verið lögð á þróun á matarupplifunum í samvinnu við Matarauð Íslands sem hefur stutt myndarlega við verkefnið. Mikill áhugi er á matarupplifunum á hinum alþjóðlega ferðamarkaði og vegna þess var ákveðið að þær yrðu hluti af Norðurstrandarleið og að þær yrðu þróaðar sérstaklega. Matur er ekki bara stór hluti af ánægjulegu ferðalagi, því hann tengir ferðamenn á tilfinningalegan hátt við staði. Matarframleiðsla og eldun er enda stór hluti allra menningarsamfélaga. Þróun á matarupplifunum á Norðurstrandarleið er því góð leið til að styrkja þennan mikilvæga hluta af ferðalaginu um ferðamannaveginn.“