Próteinduft og etanól úr hráefni sem annars væri hent
Það er alltaf ánægjulegt þegar fyrirtæki í matvælaframleiðslu ná að fullnýta þau hráefni sem unnið er með. Mólkursamsalan og Kaupfélag Skagfirðinga hafa stofnsett nýtt fyrirtæki Heilsuprótein þar sem ætlunin er að nýta prótein sem fellur til í mysunni og síðar verður framleitt etanól eða alkóhóli. úr mjólkursykri mysunnar. Þegar er hafin undirbúningur á framleiðslu mjólkurlíkjörs sem ber heitið Jökla.
Mjólkursamsalan hefur unnið að verkefninu síðan 2015, meðal annars í samstarfi við Matís, Háskólann á Akureyri, danska tækniháskólann DTU og áfengisframleiðandann íslenska Foss Distillery.
Sjá nánar á vísir.is
Þá vann mjólkursamsalan nýlega til verðlauna fyrir Ísey skyrið sitt með bragði af bökuðum eplum í skyrflokknum á matvælasýningunni International Food Contest sem haldin var í Herning í Danmörku snemma í október. Ísey skyr með bökuðum eplum hlaut einkunnina 14,68 en hæsta mögulega einkunn er 15.