Scroll To hnossgæti úr vannýttum hráefnum dómnefnd, nemendur og kennarar

Hnossgæti úr vannýttum hráefnum – hvað er að frétta?

Nemendur í Hótel- og matvælaskólanum komu sáu og sigruðu öll sem eitt í nýafstöðnum viðburði sem var í hádeginu í dag 9.  apríl í Granda Mathöll. Viðburðurinn var samvinnuverkefni Matarauðs Íslands og Hótel- og matvælaskólans til heiðurs vannýttra hráefna sem ýmist fengu nýtt hlutverk  eða nýjan búning. Við sjáum fram á nýja kynslóð kokka sem eru hvattir til að láta sig sjálfbærni og umhverfisvernd varða.

Það er sorglegt til þess að hugsa að um þriðjungi allra matvæla er sóað í gegnum virðiskeðju matvæla og hráefni fargað sem ella mætti nýta í ótrúlega bragðgóða rétti í meðförum fagmanna og hugmyndaríkra leikmanna.  Það væri virkilega spennandi ef einhver veitingastaður myndi sérhæfa sig í matreiðslu á vannýttum hráefnum, þar sem matseðillinn væri árstíðabundinn og háður því hráefni sem gnægð væri af hverju sinni. Vissulega áskorun en myndi eflaust falla neytendum samtímans vel í geð.

Dómnend valdi þrjár bestu útfærslurnar. Í dómnefnd var uppáhald okkar allra forsetafrúin Elíza Reid, meistakokkurinn og hugsjónamaðurinn Gísli Matthías Auðunsson og matreiðslumeistarinn og kennarasnillingur í Hótel- og matvælaskólanum Ragnar Wessmann. Þau brögðuðu og dæmdu alls 10 rétti. Við matið þurftu þau að taka tillit til matarupplifunar, hversu einkennandi íslenskt hráefnið væri, bragð og áferð, nýsköpunarinnar við réttinn og hversu vannýtt hráefnið í raun væri.

Uppskriftirnar eftir nemana má finna hér.

Dómnefnd hnossgæti úr vannýttum hráefnum

Fyrsta sæti:

  • Djúpsteikt hvelja með lifrarmayonnaise (hvelja er roðið á hrognkelsi)
djúpsteikt hvelja

Annað sæti:

  • Þangís gerður úr stórþara og þangskeggi borið fram á íslenskri pönnuköku
Ís úr stórþara og þangskeggi á íslenskri pönnuköku

Þriðja sæti:

  • Brasseraður nautaháls og mergur borinn fram á laufabrauði með rauðvínssósu

Diskarnir undir réttina eru eftir Ólöfu Erlu Bjarnadóttur

Aðrir réttir sem boðið var upp á:

  • Brasseruð sítrónutónuð grísakinn á mjúkri hveiti tortilla með stökkri grísapuru.
  • Lambarif með amerísku hrásalati.
  • Lifrafrauð úr rauðmagalifur á stökku kexi.
  • Reykt bleikja með íslenskum ostrusveppum og sítrónu tónuðu kartöflukremi.
  • Uxahala taco með suðrænu mayonnaise og sýrðum rauðlauk.
  • Rófu bollakaka með smjörkremi og gúrkukrapa.
  • Hunangs Torrone með ristuðum möndlum og pistasíum.
  • Grafið Lambahjarta með sýrðum ávöxtum.
  • Hvannarkrisp, kræklingakrisp, mysukrisp, hreindýramosi, fjallagrös.

Þarna mátti bragða rétti og snarl sem ekki fóru fyrir dómnefnd eins og lambabris sem bragðaðist frábærlega, mysukrisp sem var eftirlæti gesta og hreindýramosi sem var nokkuð sérstakur! Lambaslög með salati, agúrkusósa, sviða“pura“ og djúpsteikt grísaeyru voru ennfremur á boðstólum til að smakka.

Gestir og gangandi fengu ennfremur að kjósa sína uppáhaldsútfærslu

Þar var Brasseraður nautaháls og mergur á laufabrauði í uppáhaldi, síðan kom lambarif með hrásalati og í þriðja sæti rauðmagalifrarfrauð á stökku kexi.

Smelltu hér til að kjósa þá útfærslu sem þér líst best á 

Hlekkur á útvarpsviðtal hjá Huldu Bjarnadóttur á K-100 https://k100.mbl.is/brot/spila/6190/