Scroll To

Þjóðlegir réttir á okkar veg – gerum vannýtt hráefni að nýju hnossgæti

Matarauður Íslands og Hótel- og matvælaskólinn blása til sóknar gegn matarsóun og biðla til almennings um að senda hugmyndir að íslenskum hráefnum sem eru vannýtt í matargerð. Þetta er ný nálgun á kynningarherferðinni þjóðlegir réttir á okkar veg sem við efndum til í fyrra.

Nemendur við Hótel og matvælaskólann útfæra hugmyndirnar þannig að úr verður óviðjafnanlegt hnossgæti. Í hádeginu 9. apríl í Mathöll Granda fær almenningur að smakka og velja bestu útfærsluna að þeirra mati. Í kjölfarið verður netkosning á vefsíðu Matarauðs Íslands þar sem uppskriftir, aðferðir og myndir af útfærslu nemanna verða birtar.

Þetta er sameiginleg vegferð okkar allra til að efla þekkingu og notkun á vannýttum hráefnum sem oft eru ódýr, auka fjölbreytileika í matargerð, efla ímynd matarmenningar og síðast en ekki síst vinna gegn matarsóun.

Ef skapast eftirspurn eftir vannýttu hráefni gefst tækifæri fyrir frumframleiðendur að bjóða upp á slíkt t.d.  í gegnum REKO-söluhringi á facebook. Að sama skapi geta hugmyndirnar og útfærsla orðið matarfrumkvöðlum að innblæstri til vöruþróunar.

Skelltu inn hugmynd að vannýttu hráefni í matargerð á www.mataraudur.is  Hver veit hvernig eða hvar þín hugmynd endar. Sumar hugmyndirnar í fyrra hafa ratað í tímarit, í fjölmiðla og í þýska matreiðslubók!