Arctic Barley – Loftpoppað bygg

Arctic Barley er íslenskt vörumerki þar sem framleiddar eru ýmsar tegundir af poppuðu byggi og er hugsað sem hollt og gott nasl milli mála eða sem múslí í jógúrt. Braga Stefa­ný Miler­is og Hild­ur Guðrún Bald­urs­dótt­ir, nem­ar í mat­væla­fræði við Há­skóla Íslands, eru hugmyndasmiðirnir á bakvið vörumerkið sem inniheldur engan viðbættan sykur, salt eða olíu. Bygg er stútfullt af trefjum og ýmsum vítamínum og margar rannsóknir hafa sýnt fram á heilsubætandi áhrif þess. Fyrstu vörurnar sem fara á markað eru tvær tegundir af byggi, önnur blandan er með kanil, þurrkuðum epl­um, kó­kos og kasjúhnet­um en hin er múslíblanda með stevíu-súkkulaði, döðlum og kókos sem er góð í jógúrt.