Skinboss kaffiskrúbb & baðsalt

Nýbrennt og malað kaffi sem er stútfullt af andoxunarefnum mun umlykja líkamann þinn, vatnslosa, næra og vekja húðina aftur til lífsins. Cocoa butter er smjörið af kakóbaununum, það er fullt af andoxunarefnum og er E-vítamín ríkt. Þessi blanda nærir, græðir slit, bólur og exemsár en einnig hjúpar það kroppinn og ver þig gegn kulda og þurrki. Íslenska birkið er lykilhráefni í formúlunni en það hefur einstaklega græðandi eiginleika auk þess að vera auðugt af C-vítamíni sem styður við kollagenframleiðslu líkamans. Appelsínuilmkjarnaolían gefur yndislega ilmupplifun ásamt því að hún tónar, örvar, sótthreinsar og er upplífgandi.