Spretta ehf.

Spretta ehf. var stofnað árið 2015 af sprotafyrirtækinu Pop People sem er í eigu Soffíu Steingrímsdóttur og rekur snjallbýli þar sem ræktaðar eru grænsprettur. Stefán Karl Stefánsson, leikari, er framkvæmdastjóri fyrirtækisins og hefur yfirumsjón með ræktun og uppsetningu.

Grænsprettur (Microgreens) eru fyrstu laufin og stilkar jurta- og grænmetisplantna. Grænsprettur eru yfirleitt 7- 14 daga gamlar og 3-8 sentimetrar á hæð. Enginn áburður er notaður við framleiðsluna, hvorki í vökvaformi né í moldinni. Grænsprettur eru kaloríusnauð fæða sem inniheldur mikið af nauðsynlegum næringarefnum og því kjörin viðbót við daglega fæðu.

Grænsprettur má rækta í miklu úrvali. Nánast allt grænmeti og kryddjurtir er hægt að rækta sem grænsprettur svo sem eins og grænkál, radísur, rauðrófur, sellerí, salattegundir, kryddjurtir og svo mætti lengi telja. Grænsprettur gleðja augað og þær eru fallegar, stinnar og bragðsterkar og þeirra má njóta á margvíslegan hátt. Þær eru sneisafullar af næringarefnum og margar þeirra innihalda 4-6 sinnum hærra magn af vítamínum og andoxunarefnum en fullvaxta plöntur. Andoxunarefni hjálpa til við að fyrirbyggja frumuskemmdir.