Matarauður Íslands var tímabundið verkefni og lauk störfum í desember 2020. Vefnum er haldið við af Gleipni nýsköpunar- og þróunarsetri á Vesturlandi.
![Brakandi Repju Takkó með Njóla-Reyktri Rabarbarasultu, RabarbaraNjólaSalsa, Repnepi og pikluðu chili combo](https://mataraudur.is/wp-content/uploads/2020/09/Brakandi-Repju-Takkó-með-Njóla-Reyktri-Rabarbarasultu-RabarbaraNjólaSalsa-Repnepi-og-pikluðu-chili-combo-800x800.jpg)
Matarauður Íslands hefur lagt sitt af mörkum til að efla innviðastoðir matar í ferðaþjónustu með þátttöku allra landshluta, styrkja aðgerðir og áhuga á nærsamfélagsneyslu, styðja við vöru- og þjónustuþróun og tefla fram matarmenningu og sérstöðu íslensks hráefnis. Umræða og áhugi á matvælum sem auðlind hefur breyst á þessum fimm árum og einkennist meira af tengingu við umhverfisvernd, gæði, menningu og tækifæri. Þá hefur orðið ákveðin hugarfarsbreyting innan grasrótar, bændur sýna því meiri áhuga að færa sig ofar í virðiskeðjuna og ferðaþjónustan hefur lagt mun meiri áherslu á svæðisbundinn mat og tækifæri því tengdu. Hugarfarið stillir okkur saman en endurskoðun á regluverki ásamt aðgengi að fjármunum og sérfræðiráðgjöf þarf að fylgja með.
Hægt er að lesa sér til um þau verkefni sem Matarauður kom að í lokaskýrslunni í tengli hér að neðan. Vefnum er haldið við af Gleipni nýsköpunar- og þróunarsetri á Vesturlandi.
Matarauður- okkur að góðu!
![Matarauður Íslands](https://mataraudur.is/wp-content/uploads/2017/09/fiskur-á-diski-landscape.jpg)
Bragð og arfur
Við njótum þeirrar gæfu að búa við matarauð sem byggir á dýrmætri frumkvöðlahefð sem gengið hefur kynslóða á milli. Tilgangur Matarauðs Íslands er að nýta matarauðinn okkar sem sóknarfæri til frekari verðmætasköpunar innanlands í tengslum við matarferðaþjónustu, vöruþróun og ímyndaruppbyggingu. Leiðarljósið verður sjálfbær matvælastefna í anda heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Ætlunin er að draga Íslendinga og erlenda gesti að hlaðborði íslenskra krása, upplýsa um sérstöðu og heilnæmi þeirra og tefla fram sögu Íslendinga sem birtist í matarmenningu og hefðum.
Svæðisbundin hráefni, matargerð og matarhefðir
![Matarauður Íslensk fiskisúpa.jpg](https://mataraudur.is/wp-content/uploads/2017/09/Matarauður-Íslensk-fiskisúpa.jpg-web-1366x700.jpg)
Hráefni
Sérstaða og hreinleiki íslensks hráefnis leggur grunn að ímynd Íslands sem matvælalands. Íslendingar búa við skilyrði til að framleiða gæðamatvæli í sátt við sjálfbæra þróun og mikilvægi norðurslóða sem matvælauppsprettu mun aukast á komandi árum og áratugum
Lesa nánar![](https://mataraudur.is/wp-content/uploads/2017/09/Skyrkonfekt-á-Erpsstöðum.jpg)
Nýsköpun & matarfrumkvöðlar
Íslendingar búa almennt yfir kraftmikilli frumkvöðlahugsun en það eru samvinna og þekkingaryfirfærsla sem eru bestu drifkraftar nýsköpunar og framþróunar.
Mikil gróska er í nýsköpun og frumkvöðlastarfi á sviði matvæla á Íslandi. Á síðustu árum hefur nýtni orðið meira áberandi meðal frumkvöðla. Matvæli, drykkir, fæðubótarefni, snyrtivörur, plástrar og margt fleira eru afrakstur frumkvöðlastarfs innan matvælageirans.
Sjálfbærni, velferð & heilbrigði
![](https://mataraudur.is/wp-content/uploads/2017/09/Matarauður-Íslands-hjólað-í-veiði-e1505403376903-800x800.jpg)
Sjálfbært Ísland
Sjálfbærni er hinn rauði þráður framtíðarinnar. Sjálfbær þróun er skilgreind þannig að þörfum samtímans sé fullnægt án þess að skerða möguleika komandi kynslóðar til að fullnægja sínum þörfum. Í því felst verndun umhverfis, notkun hreinna orkugjafa, aukin atvinnutækifæri, áhersla á menningarleg gildi og hefðir, friður, öryggi og efnahagslegur vöxtur.
Sjálfbærni í mavælageiranum er skilgreind þannig að framleiðsla og neysla matvæla stuðli að heilbrigði jarðarbúa og þess umhverfis sem við lifum í, nú og til framtíðar.
![](https://mataraudur.is/wp-content/uploads/2017/09/20170802_101758-1600x700.jpg)
Vizkubrunnur
Hér finnur þú myndir, myndbönd, greinar og upplýsingar um vörumerkið
Lesa meira![Snæfellsjökull Lóndrangar](https://mataraudur.is/wp-content/uploads/2017/09/snaefellsjokull-londrangar-110sh-1-1600x700.jpg)
Um okkur
Megintilgangur Matarauðs Íslands var annars vegar að efla ímynd okkar innanlands sem matvælaþjóð og auka með því ásókn í íslenskar matvörur og hins vegar að styrkja verkefni sem stuðla að eflingu matarferðaþjónustu og annarra atvinnutækifæra í tengslum við matarauðinn okkar um land allt. Leiðarljósið var sjálfbær matvælastefna heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna og samvinna atvinnugreina.
Lesa meiraFréttir og Greinar
-
Íslenskt matarhandverk til vegs og virðingar
Matarhandverk er hluti af menningararfi þjóða og endurspeglar hefðir og samtíma nýsköpun. Með vaxandi áhuga á matarmenningu og matarferðaþjónustu hefur…
-
Oj er fiskur í matinn, eða hvað?
Fara þarf í átak til að auka fiskneyslu Íslendinga, sér í lagi yngri kynslóðarinnar enda einn hollasti skyndibiti sem völ…
-
Á Íslandi sárvantar kjötiðnaðarmenn- ekkert atvinnuleysi í stéttinni
Nautalund, hamborgarhryggur, beikon, pylsur, bjúgu, skinka, salami og kótilettur. Þetta ljúfmeti verður ekki til af sjálfu sér en það er…
-
Aldrei fleiri frumkvöðlafyrirtæki í matvælum -Efla má nýsköpun með betra rekstrarumhverfi og auknu samstarfi
Forsvarsmenn nýsköpunarfyrirtækja í matvælaframleiðslu telja að íslenskt umhverfi sé að mörgu leyti ákjósanlegt fyrir frumkvöðlastarfsemi í matvælaframleiðslu. Matvælageirinn er mikilvæg…