Með því að opna þá fjársjóðskistu sem sagan geymir finnum við hugmyndir, hráefni eða aðferðir sem nýtast sem innblástur í bland við það sem nútíminn býður upp á.
Látum hugkvæmni, sjálfbærni og frumleika vera okkar leiðarljós. Heiðrum náttúrunnar gjafir og gerum kröfur til þeirra sem hafa framleitt af alúð landbúnaðarvörur í yfir þúsund ár. Tölum saman, eflum samvinnu ólíkra atvinnugreina því þekkingaryfirfærsla er drifkraftur nýsköpunar og framþróunar.
Það er ýmislegt í rekstrarumhverfi frumkvöðlafyrirtækja á sviði matvæla og heilsuefna á Íslandi sem þarf að styrkja í bæklingnum Lærum af reynslunni, Staða og horfur í rekstri frumkvöðlafyrirtækja á svið matvæla og heilsuefna á Íslandi sem var gefinn 2020.
Auka þarf vitund íslenskra fjárfesta um virði þess að fjárfesta í matvælaframleiðslu og matarfrumkvöðlum, en mikil áhersla hefur verið á tæknigeirann hingað til. Hreyfingin Slow Money hefur talað fyrir því að fjármagnseigendur noti minnst 1% af fjármunum sínum til að byggja upp framleiðslu matar með áherslu á heilnæmt hráefni og sjálfbæra þróun.
Hægt er m.a. að sækja um styrki til Matvælasjóðs,Tækniþróunarsjóðs Rannís, Uppbyggingasjóði landshluta, Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands (frumkvöðla & fyrirtækjastyrki), Atvinnuþróunarfélaga, Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis, Arion banka (fyrirtæki/fjármögnun) og Frumkvöðlasjóð Íslandsbanka. Þá er auglýst eftir styrkumsóknum í samnorræn verkefni s.s. á vegum norræns samstarfs (norden.org) t.d. Northern Periphery & Arctic Programs, og frá Evrópusambandinu. Evris og Inspiralia aðstoða við að sækja um og fá evrópska styrki til vöruþróunar og undirbúnings markaðssetningar erlendis. Ýmsir fjárfestingasjóðir eru starfandi eins og t.d. Crowberry Capital, Eyrir Invest og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins. Byggðastofnun og Svanni lánatryggingasjóður kvenna bjóða upp á lán.Það er líka ágætis yfirlit á vefsíðu Byggðastofnunar
Viðskiptahraðlar eins og Start up Iceland, Icelandic startup og Reykjavík start up aðstoða frumkvöðla og Sjávarklasinn, RATA, Landbúnaðarklasinn, KPMG og Deloitte bjóða upp á frumkvöðlaráðgjöf.
Ecotrophelia Europe er alþjóðleg keppni um nýsköpun í sjálfbærri matvælaframleiðslu. Að henni standa hérlendis; Samtök iðnaðarins, Matís, Háskóli Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Þá er Matís þátttakandi í EIT-food verkefni (Nýsköpunar- og tæknistofnun Evrópu) en tilgangur þess er að finna leiðir til nýsköpunar á heimsmælikvarða.
Gott er að fylgjast með á fésbókarsíðum Matarfrumkvöðla eða Matarauðs Íslands.Vefsíðunni icemade.is er ætlað að draga saman allt það helsta sem um er að vera í sprotaumhverfinu almennt. Þá eru góðar upplýsingar fyrir frumkvöðla á síðu Nýsköpunarmiðstöðvar og upplýsingar um stafræna miðlun hér.
Sjá nánar frétt um fjárfestingatækifæri
Matarfrumkvöðlar
Drifkraftar nýsköpunar og framþróunar. Tækifæri fyrir fjárfesta
-
Gamli Bakstur
Gamli Bakstur hóf störf seinni part ársins 2020. Fyrsta varan sem Gamli Bakstur framleiðir er hátíðarlaufabrauð. Markmið Gamla Baksturs með hátíðarlaufabrauði er að bjóða laufabrauð á markað, án afsláttar á…
-
geoSilica Iceland
Vörur frá geoSilica eru unnar úr 100% náttúrulegum kísli. geoSilica ehf framleiðir 100% náttúrulegt hágæða kísilsteinefni úr jarðhitavatni frá Hellisheiðarvirkjun. Kísill hefur breiða virkni á hina ýmsu þætti og hluta…
-
Sauðagull ehf.
Sauðagull býr til góðgæti úr sauðamjólk, eins og osta og konfekt. Vörur komu á markað 2019 og er Sauðagull eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir hágæðis matvæli úr sauðamjólk fyrir…
-
North Marine Ingredients ehf
North Marine Ingredients ehf er íslenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í betri nýtingu hliðarafurða úr sjávarfangi með notkun kuldvirkra ensíma unna úr þorski. Við vinnsluna brjóta ensímin niður prótein og…
-
Urta Islandica ehf
Fjölskyldu fyrirtækið Urta Islandica ehf er byggt á grunni Urta Islandica, einkafyrirtækis Þóru Þórisdóttur myndlistarmanns og listfræðings. Hún hóf hönnun, framleiðslu og markaðssetningu á nýstárlegum matvörum og baðvörum úr íslenskum…
-
Álfur brugghús- bjór úr kartöfluhýði
Við hjá brugghúsinu Álfi trúum því að það sé enginn bjór ef það er engin framtíð. Frá upphafi hefur sjálfbærni og umhverfismeðvitund því verið kjarninn í hugmyndafræði okkar, enda brennum…
-
Korngrís frá Laxárdal
Korngrís frá Laxárdal er vörumerki Grís og flesk ehf. Okkar frumkvöðlastarf byggir á því að svínin okkar eru alin að mestu á íslensku fóðri, sem við ræktum sjálf. Í dag…
-
Íslensk hollusta
Íslensk hollusta er með þara, íslenskar jurtir og ber og við erum ötul við að leita í gamlar hefðir til að búa til nýjar vörur. Hingað til höfum við verið…
FRÉTTIR & GREINAR Í NÝSKÖPUN
-
Aldrei fleiri frumkvöðlafyrirtæki í matvælum -Efla má nýsköpun með betra rekstrarumhverfi og auknu samstarfi
Forsvarsmenn nýsköpunarfyrirtækja í matvælaframleiðslu telja að íslenskt umhverfi sé að mörgu leyti ákjósanlegt fyrir frumkvöðlastarfsemi í matvælaframleiðslu. Matvælageirinn er mikilvæg…
-
Lystahátíð matarfrumkvöðla 19. mars
Íslenski sjávarklasinn og Matarauður Íslands efna til Lystahátíðar matarfrumkvöðla í Húsi sjávarklasans þann 19. Mars. Hátíðin verður sett kl. 15:00…
-
Börn í grunnskólum Vestfjarða læra að rækta matjurtir í vatnsræktarkerfi
Í snjóþungum janúar hófst tilraunaverkefnið Fræ til framtíðar í grunnskólum Vestfjarða. Kennarar og börn í 3. bekk í grunnskólum Bolungarvíkur,…
-
Askurinn, Íslandsmeistarakeppni í matarhandverki – verðlaunaafhending 23. nóvember 2019
Verðlaunaafhending í Íslandsmeistarakeppni í matarhandverki var í gær. Afhending verðlauna og matarhátíð Matarauðs Vesturlands var haldin á Hvanneyri. Frábær stemmning…