Myndbandið sýnir stemmninguna á uppskeruhátíðinni okkar vorið 2019 í Granda Mathöll
Við Íslendingar búum yfir frumkvöðlahjarta sem nýta þarf betur til að skapa verðmæti úr vannýttum matvælum og gjöfulli náttúru. Þannig má sporna gegn matarsóun og ýta undir viðskiptatækifæri sem ratar upp í munn og niður í maga. Það er sameiginleg vegferð okkar allra að efla þekkingu og vöruþróun á vannýttum hráefnum sem oft eru ódýr, auka fjölbreytileika og styrkja matarmenningu.
Hér á eftir eru nokkrar uppskriftir úr vannýttum hráefnum sem eru skapaðar af nemendum Hótel- og matvælaskólans. Margar eru framandi, aðrar flóknar en þarna á milli eru líka frábærar einfaldar hugmyndir fyrir alla að spreyta sig á. Flestar hugmyndir að vannýttum hráefnum fengum við frá almenningi. Finna má svo allar uppskriftir frá hugmyndasamkeppni Þjóðlegra rétta 2018 og Vannýttra hráefna 2019 og 2020 undir hnappnum sem er undir forsíðumyndinni hér fyrir ofan.
Við fengum ansi margar góðar ábendingar í ár og auk þeirra sem sjást í uppskriftunum hér að neðan voru til dæmis júgur, gimbrapíkur, gaddakrabbar, þorskmagar, hákarlabrjósk, Þingvallamurta,elfting, arfi, njóli, krækiberjaskinn, lúpína,villtar plönturætur, söl og ábrystir. Ennfremur að nýta betur brauðafganga t.s. í mylsnu, brauðteninga eða bjór.
Það er gaman að segja frá því að Hótel- og matvælaskólinn hefur verið að þróa nýja námsgrein í kringum samvinnuna við Matarauð og munu halda áfram að halda á lofti skapandi nýtingu á íslenskum hráefnum með það að markmiði búa til hnossgæti og taka neytendur í menningarlegt matarferðalag.
Við héldum í sameiningu uppskeruhátíð 2018 og 2019 og leyfðum gestum og gangandi að smakka afraksturinn. Til stóð að vera með samskonar viðburð árið 2020 á Bessastöðum í samvinnu við Elízu Ried forsetafrú en þá kom COVID-19 og allt fór á bið…
Nokkrar umfjallanir 2019: Forsetaembættið, Veitingageirinn, Bændablaðið, Fréttablaðið, Kjarninn
Myndband 2018: Nemendur og dómnefnd
Nokkrar umfjallanir 2018: Vísir.is, Viðskiptablaðið, Mbl.is, Bæjar- og menningarvefur Sauðárkróks, RÚV, Bæjarins besta Bændablaðið, Forsetaembættið
-
-
Kjötréttur
Svínatungu-hamborgari með blóðtómatssósu 2020
-
-
-
Annað
Mysu kombucha, sítrónugras og hvönn 2020
-
-
Tómatseyði 2020
-
-
Kjötréttur
Hægelduð lambarif með amerísku hrásalati 2019
-
-
-
Annað
Kex og krisp 2019
-
-
-
Kjötréttur
El pastor taco – Brasseruð grísakinn 2019
-
-
-
Kaffibrauð
Rabarbarabraggi með repjubotni 2020
-
-
-
Vestfirðir
-
Fiskréttur
Rækjukóngur með jarðskokka ragú, hrognum og froðu 2020
-
-
-
Kjötréttur
Djúpsteikt lambaeistu 2020
-
-
-
Kaffibrauð
Rófu-bollakökur með smjörkremi og gúrkukrapi 2019
-
-
-
Kaffibrauð
Torrone 2019
-
-
-
Fiskréttur
Djúpsteikt hvelja með lifrarmús 2019
-
-
-
Fiskréttur
Íslenskar pönnukökur með reyktum silungahausum 2019
-
-
-
Kaffibrauð
Hafís á íslenskri pönnuköku 2019
-
-
-
Kjötréttur
Uxahala taco með suðrænu mayonnesi 2019
-
-
-
Fiskréttur
Reyktur rauðmagi 2020
-
-
-
Kjötréttur
Húsdýragarðurinn 2019
-
-
-
Annað
Blóðmarengs í blóðkramarhúsi 2020
-
-
-
Grænmetisréttur
Brakandi repju takkó 2020
-
-
Reykt bris með rabarbara geli og villtum berja candy floss 2020
-
-
Fiskréttur
Tempura Steinar 2020
-